Vilt þú ræða við einhvern sem er með svipaða reynslu og þú? Reynslubolta sem skilja hvað þú ert að ganga í gegnum.

Kraftur starfrækir tvo umræðuhópa á Facebook, annars vegar fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og hins vegar hópur fyrir aðstandendur.

Umræðuhópur krabbameinsgreindra

Hópurinn  er fyrir unga krabbameinsgreinda á aldrinum 18 – 45 ára. Markmið hópsins er að vera vettvangur fyrir unga krabbameinsgreinda til að ræða saman, deila reynslu sinni og/eða spyrja spurninga.

Við hvetjum meðlimi að vera með opnar umræður og vera óhræddir við að spyrja um allt á milli himins og jarðar.

Umræðuhópur aðstandenda

Hópurinn er fyrir aðstandendur ungra krabbameinsgreindra. Markmið hópsins er að vera vettvangur fyrir aðstandendur til að ræða saman, deila reynslu sinni og/eða spyrja spurninga.

Við hvetjum meðlimi að vera með opnar umræður og vera óhræddir við að spyrja um allt á milli himins og jarðar.