BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Kraftur - ECPv6.15.15//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://kraftur.org
X-WR-CALDESC:Viðburðir í Kraftur
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20180101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20190304T171500
DTEND;TZID=UTC:20190304T183000
DTSTAMP:20260423T075237
CREATED:20190219T164539Z
LAST-MODIFIED:20190219T164539Z
UID:1235302-1551719700-1551724200@kraftur.org
SUMMARY:FítonsYoga - nýtt byrjendanámskeið
DESCRIPTION:Hefur þig langað að prófa jóga en aldrei þorað? Hefur þú reynt að stunda jóga en það hefur aldrei orðið að venju? Eða ertu nú þegar ástfangin/nn af jóga og vilt nýta hvert tækifæri til að stunda það í góðum hópi fólks? Þá er þetta námskeið eitthvað fyrir þig! \nNýtt byrjendanámskeið að hefjast í FítonsYoga þann 4.mars – 3.apríl. \nNámskeiðið er hugsað bæði fyrir byrjendur og lengra komna\, þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Markmið námskeiðsins er að auka styrk og liðleika\, auk þess að læra hugleiðslu og öndunaræfingar. Þó verður mest lagt upp úr því að búa til stund fyrir sjálfa/n þig og að ná góðri slökun í lokin. \nNámskeiðið er hugsað fyrir félagsmenn\, krabbameinsgreinda og aðstandendur. Eina sem þú þarft ert þú sjálf/ur og föt sem þægilegt er að hreyfa sig í. Dýnur verða á staðnum\, en þú mátt að sjálfsögðu mæta með þína eigin. Námskeiðið er félagsmönnum okkar að kostnaðarlausu.  \nPála Margrét kennir námskeiðið\, en hún hefur lokið 500 klst. jógakennaranámi í Tælandi. Hún hefur sjálf reynslu af því að komast í gegnum vefjagigt með jóga\, og hefur sú reynsla haft áhrif á það hvernig hún kennir jóga. \nSkráðu þig hér!\n\nFrekari upplýsingar veitir Pála Margrét: palamargret@hamingjujoga.is
URL:https://kraftur.org/vidburdur/fitonsyoga-nytt-byrjendanamskeid/
LOCATION:Kraftur  – Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur\, Skógarhlíð 8\, Reykjavík\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2019/01/banner_jan_FitonsYoga_byrjendanamskeid-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20190306T200000
DTEND;TZID=UTC:20190306T220000
DTSTAMP:20260423T075237
CREATED:20190221T170208Z
LAST-MODIFIED:20190221T170208Z
UID:1235385-1551902400-1551909600@kraftur.org
SUMMARY:Kaffihúsakvöld með draumakorti / Vision Board
DESCRIPTION:Næsta kaffihúsakvöld Krafts verður haldið miðvikudaginn 6. mars. Núna getum við látið drauma okkar rætast þar sem  markþjálfinn okkar hún Stína mun leiða okkur áfram í að setja upp draumakort (e. vision board) og ræða við okkur um markmiðasetningu. \nÞetta verður góður tími til þess að staldra við og hugsa hvað það er sem við virkilega viljum og þráum. Hverjir eru draumar okkar fyrir þetta ár og hvert stefnum við. Hvað viljum við að árið 2019 færi okkur. \nVið erum gjörn á að setja okkur markmið í upphaf árs\, sum raunhæf og önnur ekki. Nú þegar að annar mánuður ársins er hafinn erum við sum okkar búin að átta okkur á því hvað er að virka og hvað ekki. Þar mun draumakortið koma sterkt inn í. \nTil að gera draumakort þarf maður ekki að vera föndursnillingur. Allir fá sitt eigið karton og mega láta sköpunargleiðina ráða ríkjum. Karton\, blöð til þess að klippa út\, skæri\, lím\, pennar og litir verða á staðnum. \nDraumakortin eru mjög áhrifarík og það að setja saman eitt slíkt gerir það að verkum að við verðum meira meðvitaðari um hvað það er sem við viljum og þráum. Það er mjög öflug leið að hengja þau upp á stað sem að þú getur alltaf séð það\, t.d. bak við svefnherbergishurðina\, inni í fataskáp þannig fáum við stöðugt áminningu um draumana. \nStína og aðrir fulltrúar frá Krafti taka vel á móti ykkur yfir rjúkandi heitum kaffi/tebolla og annarri hressingu 🙂 Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið haft samband í síma Krafts 866-9698. \nÞetta er opið hús\, milli 20 og 22\, svo fólk getur komið og kíkt við eins og það vill 🙂 \nSjáumst í Krafti yfir rjúkandi heitum bolla í kósý stemningu!
URL:https://kraftur.org/vidburdur/kaffihusakvold-med-draumakorti-vision-board/
LOCATION:Kraftur  – Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur\, Skógarhlíð 8\, Reykjavík\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2019/02/banner_mars_kaffihusakvöld_draumakort-2-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR