BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Kraftur - ECPv6.15.15//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Kraftur
X-ORIGINAL-URL:https://kraftur.org
X-WR-CALDESC:Viðburðir í Kraftur
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20180101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20190703T170000
DTEND;TZID=UTC:20190703T183000
DTSTAMP:20260423T014126
CREATED:20190627T140521Z
LAST-MODIFIED:20190627T140521Z
UID:1238253-1562173200-1562178600@kraftur.org
SUMMARY:Strandblak - Krabbamein fer ekki í frí
DESCRIPTION:Miðvikudaginn 3. júlí ætlar Kraftur að vera með Strandblak í Laugardalslaug og er þetta fyrsti viðburðurinn undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí.  \nÁ hverjum miðvikudegi í júlí stendur Kraftur fyrir viðburði fyrir félagsmenn sína. Þar höfum við að megin markmiði að koma saman\, njóta útivistar og líðandi stundar. Viðburðirnir eru bæði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein sem og aðstandendur og er tilvalin stund fyrir vini og fjölskyldu að koma saman.  \nVið ætlum að hittast klukkan 16:50 í anddyrinu á Laugardalslauginni og förum síðan saman að strandblakvöllunum inni í Laugardalslaug en vellirnir eru á bak við barnalaugina. Eftir strandblakið ætlum við að skella okkur í pottana fyrir þá sem vilja svo endilega takið með ykkur sundföt. Þú þarft ekki að kunna reglurnar í blaki eða hafa spilað áður þar sem megin markmiðið er að koma saman og gera eitthvað skemmtileg og njóta líðandi stundar.  \nEndilega meldið ykkur hér á Facebook til að við vitum hversu margir eru að koma.  \nKrabbamein fer ekki í frí\nKrabbamein fer ekki í frí er vitundarvakning Krafts sem snýr að því að vekja athygli á því að þótt fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Oft getur verið minni starfsemi og þjónusta yfir sumartímann í heilbrigðisgeiranum og kvartar fólk oft undan takmarkaðri þjónustu.  \nKraftur hefur því tekið saman á einn stað hvernig opnun er hjá hinum ýmsu þjónustuaðilum fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur svo fólk viti hvert það getur leitað og hvenær þar sem við gerum okkur grein fyrir að krabbamein fer ekki í frí. \nEinnig munum við standa fyrir vikulegum viðburðum í júlí fyrir félagsmenn sína þar sem markmiðið er að koma saman\, stunda útivist og njóta líðandi stundar.
URL:https://kraftur.org/vidburdur/strandblak-krabbamein-fer-ekki-fri/
LOCATION:Laugardalslaugin\, Sundlaugarvegur 30\, Reykjavík\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2019/06/banner_juli_strandblak_web-2.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR