BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Kraftur - ECPv6.15.15//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Kraftur
X-ORIGINAL-URL:https://kraftur.org
X-WR-CALDESC:Viðburðir í Kraftur
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20190101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20200120T173000
DTEND;TZID=UTC:20200120T190000
DTSTAMP:20260425T120252
CREATED:20191230T145524Z
LAST-MODIFIED:20191230T145524Z
UID:1245132-1579541400-1579546800@kraftur.org
SUMMARY:AðstandendaKraftur - Hvað get ég gert?
DESCRIPTION:Þegar fjölskyldumeðlimur eða ástvinur greinist með krabbamein standa aðstandendur oft frammi fyrir spurninginni – Hvað get ég gert? Þetta er í raun tvíþætt spurning þ.e. annars vegar hvernig fólk getur verið til staðar fyrir ástvin sinn og hins vegar hvaða bjargráð séu til staðar fyrir aðstandendur til að hlúa að sjálfum sér. \nMánudaginn 20. janúar klukkan 17:30 ætlum við að ræða hvað aðstandendur geta gert þegar fjölskyldumeðlimur eða vinur greinist með krabbamein og hvaða áhrif þetta hefur á alla. \nNilsina L. Einarsdóttir félagsmaður Krafts ætlar að kynna okkur fyrir stuðningshópnum sem hennar vinir og fjölskylda mynduðu í hennar veikindum. Gísli Álfgeirsson\, sem er einnig félagsmaður Krafts\, ætlar að fara yfir hve mikilvægt það er að aðstandendur geri eitthvað fyrir sjálfan sig. Umræður verða í lok kynningar. \n  \nNánar um AðstandendaKraft\nAðstandendaKraftur er vettvangur fyrir aðstandendur til að hittast\, fræðast og deila sinni reynslu. Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem  ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum. \nKomdu á opið kvöld hjá AðstandendaKrafti. Við verðum í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins\, Skógarhlíð 8. Boðið verður upp á léttar veitingar. \nHlökkum til að sjá þig.
URL:https://kraftur.org/vidburdur/adstandendakraftur-hvad-get-eg-gert/
LOCATION:Kraftur  – Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur\, Skógarhlíð 8\, Reykjavík\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2019/12/Banner_oktober_adstandendur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20200120T193000
DTEND;TZID=UTC:20200120T204500
DTSTAMP:20260425T120252
CREATED:20191230T133213Z
LAST-MODIFIED:20191230T133213Z
UID:1245168-1579548600-1579553100@kraftur.org
SUMMARY:FítonsYoga - nýtt námskeið
DESCRIPTION:Hefur þig langað að prófa jóga en aldrei þorað? Hefur þú reynt að stunda jóga en það hefur aldrei orðið að venju? Eða ertu nú þegar ástfangin/nn af jóga og vilt nýta hvert tækifæri til að stunda það í góðum hópi fólks? Þá er þetta námskeið eitthvað fyrir þig! \nNýtt 6 vikna námskeið að hefst í FítonsYoga þann 20. janúar. Námskeiðið er nú haldið á mánudögum og fimmtudögum kl. 19:30-20:45.\n \nNámskeiðið heitir Komdu þér í jafnvægi og er hugsað bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Markmið námskeiðsins er einmitt að auka jafnvægi\, styrk og liðleika og hjálpa þér að slaka á í amstri dagsins. Hentar fyrir þá sem eru í krabbameinsmeðferð eða eru að byggja sig upp eftir veikindin sem og fyrir aðstandendur. Tilvalið tækifæri fyrir alla til að gefa sér tíma fyrir sig. \nEina sem þú þarft ert þú sjálf/ur og föt sem þægilegt er að hreyfa sig í. Dýnur verða á staðnum\, en þú mátt að sjálfsögðu mæta með þína eigin. Námskeiðið er félagsmönnum okkar að kostnaðarlausu.  \nPála Margrét kennir námskeiðið\, en hún hefur lokið 500 klst. jógakennaranámi í Tælandi. Hún hefur sjálf notað jóga til að sigrast á vefjagigt og nýtist sú reynsla henni við kennsluna.  \nSkráðu þig hér!\n\nFrekari upplýsingar veitir Pála Margrét: palamargret@hamingjujoga.is
URL:https://kraftur.org/vidburdur/fitonsyoga-nytt-namskeid/
LOCATION:Kraftur  – Stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur\, Skógarhlíð 8\, Reykjavík\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2018/03/Fitonsjoga_585x300-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR