BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Kraftur - ECPv6.15.15//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Kraftur
X-ORIGINAL-URL:https://kraftur.org
X-WR-CALDESC:Viðburðir í Kraftur
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210911T100000
DTEND;TZID=UTC:20210911T140000
DTSTAMP:20260422T223540
CREATED:20210719T144201Z
LAST-MODIFIED:20210719T144201Z
UID:1272698-1631354400-1631368800@kraftur.org
SUMMARY:Hlaupa- og hausthátíð Krafts
DESCRIPTION:Hlaupa- og hausthátíð Krafts verður haldin 11. september næstkomandi. Þar komum við saman njótum útivistar\, hlaupa og líðandi stundu. Hátíðin  verður haldin í Elliðaárdalnum og er tilvalin fyrir fjölskyldu og vini að koma saman og styðja hvert annað. \nHátíð og hlaup\n„Við í Krafti höfum ákveðið að vera með sérstaka hátíð í Elliðaárdalnum þann 11. september þar sem við hvetjum Kraftshlaupara og aðra að koma og njóta dagsins með okkur. Við verðum með skráningu á viðburðinn til að passa upp á hópamyndun og verðum með hvatningarstöðvar og skemmtun fyrir hlaupara og aðra sem vilja njóta dagsins með okkur. Við munum merkja 1km\, 10 km og 21 km hlaupaleiðirnar í Elliðaárdalnum og vera með ýmist sprell og gaman fyrir alla aldurshópa\,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir\, framkvæmdastjóri Krafts. \nDagskrá hátíðarinnar\n\nKl. 9:30 – 21 km hlauparar ræstir\nKl. 10:10-10:25 – Upphitun fyrir 10 km. Jón Oddur Sigurðsson hjá Reebok fitness mun koma okkur í stuð og standa fyrir upphituninni\nKl. 10:30 – 10 km hlauparar ræstir\nKl. 12:00 – 1 km skemmtiskokk ræst\nKl. 12:20 – Tónlistaratriði úr söngleiknum Hlið við Hlið eftir Friðrik Dór \nKl. 12:00- 13:00 – Vöffluhlaðborð í boði Krafts\, ásamt kaffi\, heitu súkkulaði\, Gatorade og Capri Sun\n\n\nHjálpaðu okkur að hjálpa öðrum\nÞú getur skráð þig til að safna áheitum á  https://www.rmi.is/skraning og greiða þar 1.000 krónur. Þannig getur þú lagt Krafti líka lið með áheitasöfnun. \nÁheitasöfnunin á www.hlaupastyrkur.is skiptir félag eins og Kraft afskaplega miklu máli og hefur starfsemi Krafts undanfarin ár stólað mikið á þá styrki sem koma í gegnum Reykjavíkurmaraþonið. Áheitasöfnuninni lýkur á miðnætti 20. september og hvetjum við alla til að heita á hlaupara og hvetja þá þannig áfram. \nGlaðningur fyrir þig\nAllir sem hlaupa fyrir Kraft\, hvort sem er á Hlaupahátíð Krafts eða á öðrum tíma\, geta komið í Skógarhlíð 8 og fengið hlaupabol sérmerktan Krafti og glaðning frá félaginu. Hægt er að nálgast glaðninginn alla virka daga frá kl. 9-16 á skrifstofu Krafts frá 20. ágúst til 20. september. \n„Við hvetjum alla þá sem ætla að hlaupa fyrir Kraft að koma og njóta dagsins með okkur sem og alla sem vilja koma og hvetja. Allir geta tekið þátt. Við munum kynna þetta nánar á næstu dögum en við erum að leggja lokahönd á dagskrá. Endilega takið daginn frá og skráið ykkur hér\,“ segir Hulda að lokum. \nHlaupaleiðirnar í Elliðaárdalnum\n\n1 km skemmtiskokk \n \nHlaupið verður frá félagsheimili starfsmanna Orkuveitunnar og út að Höfðabakkabrú og aftur til baka. \nSkemmtileg hlaupaleið sem liggur mitt á milli Elliðaárdals og Árbæjarsafns. Hlaupið verður 500 m upp að Höfðabakka og svo snúið við og hlaupið til baka  aftur að félagsheimilinu þar sem allir taka vel á móti þér við markið. \n\n10 km hringur \n \nHlaupið verður frá félagsheimili starfsmanna Orkuveitunnar og sem leið liggur eftir Elliðaárdalnum og yfir göngubrú sem er við Breiðholtsbrautina. Hlaupið heldur svo áfram niður Elliðárdalinn en farið er yfir Sólarleiðarbrú aftur að Rafstöðvarvegi. Þegar komið er að Rafstöðvarvegi er beygt til vinstri til að fara örstuttan spotta og snúið við til að ná 10 km og þaðan farið svo aftur að félagsheimilinu þar sem allir taka vel á móti þér við markið. \n\n21 km hringur\n \nHlaupið er í raun tveir 10 km hringir með smá viðbót. Hlaupið verður frá félagsheimili starfsmanna Orkuveitunnar og sem leið liggur eftir Elliðaárdalnum og yfir göngubrú sem er við Breiðholtsbrautina. Hlaupið heldur svo áfram niður Elliðárdalinn en farið er yfir Sólarleiðarbrú aftur að Rafstöðvarvegi. Á fyrsta hring þegar komið er að Rafstöðvarvegi er beygt til vinstri og hlaupið að hringtorginu við Bíldshöfða og þar snúið við og hladið aftur sem leið liggur Rafstöðvarveginn og fram hjá félagsheimilinu og hringur 2 tekinn. Þegar þú ert alveg að klára hring númer tvö kemurðu að Rafstöðvarveginum aftur og hleypur þá styttri leið til vinstri eða rétt að enda bílastæðis og aftur til baka að félagsheimilinu þar sem allir taka vel á móti þér við markið. \nSamstarfsaðilar Hlaupa- og hausthátíðar Krafts\n\nExton \nIcePharma\nOrkuveita Reykjavíkur og starfsmenn hennar\nReebok Fitness \nSöngleikurinn Hlið við Hlið \nVöffluvagninn\nÖlgerð Egils Skallagrímssonar
URL:https://kraftur.org/vidburdur/vertu-med-klapplidi-krafts-2/
LOCATION:Elliðaárstöð  við Rafstöðvarveg\, Rafstöðvarvegur\, Reykjavík\, 110\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2021/07/banner_sept_hlaupa-hausthatid_web-2.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR