BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Kraftur - ECPv6.15.15//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://kraftur.org
X-WR-CALDESC:Viðburðir í Kraftur
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20211021T170000
DTEND;TZID=UTC:20211021T193000
DTSTAMP:20260422T223740
CREATED:20211006T141217Z
LAST-MODIFIED:20211006T141217Z
UID:1291421-1634835600-1634844600@kraftur.org
SUMMARY:Kröftug kvennastund í Hörpu
DESCRIPTION:Í tilefni af Bleikum október verður Kraftur með kröftuga kvennastund í Hörpu fimmtudaginn 21. október milli klukkan 17:00 og 19:30. Við fáum kraftmiklar konur til að deila reynslu sinni\, hvert þær sækja sinn styrk og hvernig þær hafa tekist á við áskoranir hvort sem er í starfi eða persónulega lífinu. \nFrú Vigdís Finnbogadóttir\, fyrrverandi forseti Íslands og verndari Krabbameinsfélagsins\, setur Kvennastundina \nFram koma: \n\nLára Guðrún Jóhönnudóttir\, hvunndagshetja Bleiku slaufunnar 2021. Lára missti móður sína ung úr krabbameini og greindist svo síðar sjálf með brjóstakrabbamein. Hún hefur verið síðust ár öflugur talsmaður kvenna sem greinst hafa með brjóstakrabbamein og vakið athygli á þeim málefnum sem betur mega fara í þeim efnum.\nG. Sigríður Ágústsdóttir\, Sirrý snjódrífa\, fékk þær fregnir fyrir 6 árum síðan að hún væri með ólæknandi krabbamein. Til að takast á við veikindin fór hún að stunda útivist og göngur sér til sjálfseflingar. Hún setti á laggirnar verkefnið Lífskraft sem m.a. stóð að þverun Vatnajökuls og göngu 100 kvenna upp á Hvannadalshnjúk til styrktar Líf styrktarfélagi\, Krafti og krabbameinsdeild Landspítalans.\nAnna Dröfn Sigurjónsdóttir\, hefur talað opinskátt um sína baráttu við brjóstakrabbamein undir #látumdælunaganga og á Facebook síðunni Föruneyti hringsins. Á síðasta ári greindist hún með meinvörp út frá brjóstakrabbameininu sem hún hefur verið að takast á við og hefur vakið athygli fyrir viðhorf sitt til lífsins og opinskáa umræðu um krabbamein og því sem því fylgir.\nEliza Reid\, forsetafrú og frumkvöðull\, hefur tekið að sér ýmis verkefni bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur staðið frammi fyrir ýmsum áskorunum bæði í starfi og persónulega lífinu. Eliza hefur sjálf sagt að hún sé ekki skraut forsetaembættisins heldur kona með sína eigin rödd og eigin skoðanir sem vill gera samfélaginu gagn. Fyrsta bók Elizu – Sprakkar – Kvenskörungar Íslands og hvernig þær leitast við að breyta heiminum kemur einmitt út hjá Forlaginu 11. nóvember nk.\nRagnheiður Guðmundsdóttir mun þá lesa upp úr nýútgefinni ljóðabók sinni – PTSD – ljóð með áfallastreitu – en ljóð hennar fæddust þegar hún var að vinna sig út úr áfallinu eftir krabbameinsveikindi. Ljóðabókin verður til sölu á viðburðinum og mun ágóðinn af þeirri sölu renna til Krafts.\n\nÍ lokinn verður boðið upp á umræður þar sem konur geta borið fram fyrirspurnir fyrir þessar kröftugu konur sem halda erindi á kvennastundinni. \nFundarstjórn: Ingileif Friðriksdóttir og María Rut Kristinsdóttir\, baráttukonur í réttindabaráttu hinsegin fólks og hafa m.a. halda úti fræðslu á samfélagsmiðlum Hinsegin leikanna. \nLéttar bleikar veitingar verða í boði. \nÞetta verður söguleg og mögnuð kvennastund. Ókeypis er á viðburðinn en takmarkað sætapláss er í boði og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst til að tryggja sér sæti. \nVið biðjum þig að skrá þig hér. \nHlökkum til að eiga kröftuga bleika kvennastund með ykkur í Hörpu í október!
URL:https://kraftur.org/vidburdur/kroftug-kvennastund-horpu/
LOCATION:Harpa\, Austurbakka 2\, Reykjavík\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2021/10/Banner_kroftug_kvennastund_800x533-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR