BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Kraftur - ECPv6.15.15//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://kraftur.org
X-WR-CALDESC:Viðburðir í Kraftur
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20211104T200000
DTEND;TZID=UTC:20211104T213000
DTSTAMP:20260422T190643
CREATED:20211025T085513Z
LAST-MODIFIED:20211025T085513Z
UID:1291423-1636056000-1636061400@kraftur.org
SUMMARY:Kröftug strákastund á Kexinu
DESCRIPTION:Ert þú karlmaður og hefur greinst með krabbamein eða ert aðstandandi? Viltu heyra í jafningjum sem gengið hafa í gegnum svipaða reynslu? Þá mælum við eindregið með því að þú komir á Kex hostel fimmtudagskvöldið 4. nóvember klukkan 20:00. Skráðu þig hér.  \nVið strákarnir ætlum að hittast og þú getur komið og hlustað á jafningja sem skilja þig. Það getur verið gott að heyra hvernig aðrir hafa tæklað hlutina. \nReynsluboltar koma og segja frá. Þar á meðal verða Kári Kristján Kristjánsson\, landsliðsmaður í handbolta\, sem mun segja frá sinni reynslu og sjokkinu við það að greinast tvisvar með æxli í bakinu. Pétur Helgason mun segja frá sinni reynslu en konan hans greindist með brjóstakrabbamein og hélt Pétur fyrst að hann myndi geta græjað allt saman en svo fóru að koma upp óþægilegar tilfinningar\, kergja og reiði. Hjörleifur Stefánsson mun segja frá sinni reynslu en hann kallar krabbameinið og tilfinningarnar sem hellast yfir mann hlandfötuna. Konan hans hefur tvívegis greinst með brjóstakrabbamein og hafa þau talað tæpitungulaust um krabbameinið og það sem því fylgir við börnin sín og aðra. Arnar Sveinn Geirsson mun segja frá því hvernig hann gróf tilfinningar sínar eftir að hann missti mömmu sína úr krabbameini og hvaða áhrif það hefur haft á hann. \nMatti Osvald Stefánsson\, heilsufræðingur og markþjálfi Ljóssins og Þorri Snæbjörnsson\, sálfræðingur Krafts og Krabbameinsfélagsins\, munu leiða þessa kraftmiklu strákastund. \nÍ lok stundarinnar munu Stebbi Jak og Hafþór Valur stíga á stokk og taka nokkur lög. \nÞað verður tilboð á veitingastaðnum Flatus á Kex fyrir stráka sem mæta á svæðið. \nVið mælum með að þú komir á þessa snilldar strákastund – taktu endilega með þér vin því við getum ábyggilega allir speglað okkur í einhverjum af þeim reynsluboltum sem munu stíga fram og segja frá sinni reynslu. En það þarf skrá sig hér.  \nSjáumst á strákastundinni
URL:https://kraftur.org/vidburdur/kroftug-strakastund-kexinu/
LOCATION:KEX hostel\, Skúlagata 28\, Reykjavík\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://kraftur.org/wp-content/uploads/2021/10/Kraftmikil_strakastund_nov2021_banner_web-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR