Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Rauðavatn

19. september 2020 @ 11:00 - 12:30

Laugardaginn 19.september, ætlum við í skemmtilega göngu í kringum Rauðavatn. Falleg og skemmtileg leið sem er á flestra færi. Gengið verður í kringum vatnið þar sem stígar eru á jafnsléttu og lítið um hækkun, en gott að hafa í huga að hluti gönguleiðarinnar er á malarstíg og þvi gott að vera í góðum skóm. Gangan tekur um klukkustund. Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru í útjaðri Reykjavíkur.

Við munum hittast á bílastæðinu hjá Olís við Suðurlandsveg þar sem er nóg af bílastæðum.

Við hjá Krafti viljum að allir fari eftir fyrirmælum Almannavarna og minnum ykkur því á að virða 2 metra regluna.

Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem Kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir leiðir en hún hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.

Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin. Endilega meldið ykkur á Facebook viðburðinum

Hægt er að ná í Ragnheiði í síma: 663-9360

Upplýsingar

Dagsetning:
19. september 2020
Tímasetning:
11:00 - 12:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/4143377005762730/