Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

AðstandendaKraftur – Mikilvægi jafningjastuðnings

27. nóvember 2019 @ 17:30 - 19:00

Aðstandendakraftur

Miðvikudaginn 27. nóvember klukkan 17:30 ætlum við að kynna mikilvægi jafningjastuðnings fyrir aðstandendum þeirra sem greinst hafa með krabbamein. Þorri, sálfræðingur Krafst mun fara yfir mikilvægi jafningastuðnings og kynna Stuðningsnetið sem byggir á því.

Við þekkjum það öll sem lendum í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa verið í svipuðum sporum. Stuðningsnetið er faglegur jafningjastuðningur sem kemur virkilega að góðu gagni fyrir aðstandendur jafnt og einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Umræður verða í lok kynningar.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem  ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.

Komdu á opið kvöld hjá AðstandendaKrafti. Við verðum í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Endilega meldaðu þig á Facebook

Hlökkum til að sjá þig.

Upplýsingar

Dagsetning:
27. nóvember 2019
Tímasetning:
17:30 - 19:00

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website