Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

AðstandendaKraftur – Hvað getum við gert fyrir þig?

26. ágúst 2020 @ 17:30 - 19:00

AðstandendaKraftur

Miðvikudaginn 26.ágúst klukkan 17:30 ætlum við að koma saman og hlusta á nokkra frábæra félagsmenn deila sinni reynslu og hvaða bjargráð þeir hafa tileinkað sér í ferlinu.

Þessi fyrsti hittngur eftir Covid verður því tileinkaður okkur, við ætlum að eiga rólega stund í húsnæði Ráðgjafaþjónustunnar og kynnast betur og ætlum við að enda kvöldið á opnum umræðum þar sem öllum þeim sem vilja, fá tækifæri til að kynna sig og deila sinni reynslu.

Við þekkjum það öll sem lendum í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa verið í svipuðum sporum, AðstandendaKraftur var stofnaður af aðstandendum fyrir aðstandendur og hvetjum við alla til að mæta.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum.

Komdu á opið kvöld hjá AðstandendaKrafti. Við verðum í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Endilega meldaðu þig á Facebook
Hlökkum til að sjá þig.

Upplýsingar

Dagsetning:
26. ágúst 2020
Tímasetning:
17:30 - 19:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/612297496087129/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website