Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Fræðslukvöld hjá Ungliðahópnum

9. mars 2017 @ 18:00 - 22:00

Fimmtudagskvöldið 9. mars næstkomandi kl. 19:30 í Ljósinu ætlar Pálmar Ragnarsson að koma til okkar á motivation kvöld Ungliðahóps Ljóssins, Krafts og SKB og halda frábæran fyrirlestur um jákvæða nálgun í samskiptum.

Hann fjallar um aðferðir og reynslu sína við þjálfun barna og unglinga, en hann hefur yfir 10 ára reynslu af körfuknattleiksþjálfun barna og ungmenna, með einstökum árangri. Aðal áherslan er umfjöllun um jákvæða nálgun í samskiptum, móttaka nýrra iðkanda, samskipti við foreldra og fleira.

https://www.ruv.is/frett/af-hverju-eru-stelpur-svona-godar-i-korfu

Fyrir fyrirtæki og félagasamtök blandar hann einnig inn í fyrirlesturinn reynslu sinni af stjórnunarstörfum með fullorðið fólk og veltir upp þeirri hugmynd hvort sömu aðferðir í samskiptum geti einnig reynst vel á vinnumarkaðinum.
Pálmar stýrði meistaramánuði Íslandsbanka núna í ferbrúar síðastliðnum þar sem hver og einn gat sett sér þar markmið, skorað á sig og reynt að vera besta útgáfan af sjálfum sér.
Hann var einnig annar af umsjónarmönnum Íþróttalífsins á RÚV veturinn 2015.

Þetta eru virkilega hvetjandi, skemmtilegir og jákvæðir fyrirlestrar sem hafa fengið mikið umtal og skilja gott eftir sig.

Hvet alla til þess að skrá sig á viðburðinn!
þetta er e-ð sem allir hafa gaman af og enginn vill missa af 🙂

Það er velkomið að bjóða vini með sér 🙂

Frekari upplýsingar er hægt að finna inn á Facebookhóp Ungliðahópsins

Sjáumst hress næsta fimmtudag,
Kv. Kristján

Upplýsingar

Dagsetning:
9. mars 2017
Tímasetning:
18:00 - 22:00
Vefsíða:
www.kraftur.org

Staðsetning

Ljósið
Langholtsvegur 43
Reykjavík, Iceland
+ Google Map