Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Frisbígolf á Klambratúni – Krabbamein fer ekki í frí

22. júlí 2020 @ 17:15 - 19:15

Miðvikudaginn 22. júlí ætlar Kraftur að vera með Frísbígolf á Klambratúni undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí.

Við ætlum við að hittast klukkan 17:15 hjá bílastæðinu við Kjarvalsstaði. Við munum síðan rölta saman inn á túnið í frísbígolf. Þú þarft ekkert að kunna leikinn heldur förum við yfir reglurnar og höfum svo gaman saman en aðal markmiðið er ekki að vinna heldur að koma saman og njóta líðandi stundar og vonandi góða veðursins 🙂

Endilega meldið ykkur hér á Facebook til að við vitum hversu margir eru að koma.

Í sumar stendur Kraftur fyrir þremur viðburðum undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí fyrir félagsmenn sína þar sem við höfum að megin markmiði að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar. Viðburðirnir eru bæði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein sem og aðstandendur og er tilvalin stund fyrir vini og fjölskyldu að koma saman.

Krabbamein fer ekki í frí er vitundarvakning Krafts sem snýr að því að þótt fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Oft getur verið minni starfsemi og þjónusta yfir sumartímann hjá þjónustuaðilum sem sinna krabbameinsgreindum og aðstandendum. Við hjá Krafti höfum því tekið saman opnunartíma hjá ýmsum aðilum. Þótt þjónustan sé takmarkaðri þá skiptir máli að vita hvert maður getur leitað sér læknishjálpar, ráðgjafar og stuðnings.

Upplýsingar

Dagsetning:
22. júlí 2020
Tímasetning:
17:15 - 19:15
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/2561451624109838/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

klambratún
Flókatún 24
Reykjavík, 105 Iceland
+ Google Map