Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Lífkraftsgangan með gönguhópnum Að klífa brattann

13. júní 2020 @ 11:00 - 13:00

Kraftsfélagar ælta að sína stuðning í verki og ganga Búrfellsgjánna til stuðnings Lífskrafti, öflugum hópi kvenna, sem ætla að þvera Vatnajökul á gönguskíðum til stuðnings Krafts og Líf.

Við hvetjum alla kraftsfélaga, fjölskyldur þeirra, börn og vini að fjölmenna í þessa göngu og sína þar með stuðning í verki. Þú þarft ekki að vera félagsmaður í Krafti til að taka þátt í þessari göngu.

Endilega meldaður þig á viðburðinn hér.

Ekið er Ellivatnsvegi og beygt inn á Heiðmerkurveg. þar er keyrt meðfram Vífilsstaðahlíð í átt að Hjöllum. Rétt áður en þangað er komið, stuttu eftir að malbiki sleppir er bílastæði á hægri hönd. Þar munum við hittast og hefja göngu.

Skemmtileg og þægileg gönguleið sem sýnir okkur hversu fallegan svip jarðhræringar setja á náttúru okkar. Í raun einstök gönguleið. Gangan er að mestu á láglendi. Búrfell er 179 metrar á hæð og gígurinn sjálfur er 140 metrar í þvermál. Dýpstur er hann 58 metrar og grynnstur 26 metrar. Útsýni er fínt, við horfum yfir Húsfell, Valahnúka og Helgafell, Kaldársel og Vífilsstaðahlíð.

Falleg náttúra og skemmtileg ganga fyrir fyrir alla til að geta tekið þátt. Gott er að taka með sér nesti eða einhverjar hressingu.

Að klífa brattann er gönguhópur sem Kraftskonan Ragnheiður Guðmundsdóttir leiðir en hún hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum. Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.

Ragnheiður (sími: 663-9360)
Þú getur fylgst með okkur á Facebook og beðið um inngöngu í hópinn hér:

Upplýsingar

Dagsetning:
13. júní 2020
Tímasetning:
11:00 - 13:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/284964385965931/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website