Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Mínígolf í Skemmtigarðinum – Krabbamein fer ekki í frí

12. ágúst 2020 @ 17:15 - 19:15

Miðvikudaginn 12. ágúst ætlar Kraftur að vera með Mínígolf í Skemmtigarðinum í Grafarvoginum undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí.

Þetta er síðasti sumarviðburður Krafts undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí fyrir félagsmenn sína þar sem við höfum að megin markmiði að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar. Viðburðirnir eru bæði fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein sem og aðstandendur og er tilvalin stund fyrir vini og fjölskyldu að koma saman.

Við ætlum við að hittast klukkan 17:15 hjá innganginum í Skemmtigarðinn. Við munum síðan rölta saman inn og skella okkur í mínígolf. Þú þarft ekkert að kunna leikinn heldur förum við yfir reglurnar og höfum svo gaman saman en aðal markmiðið er ekki að vinna heldur að koma saman og njóta líðandi stundar og vonandi góða veðursins 🙂

Endilega meldið ykkur á Facebook til að við vitum hversu margir eru að koma.

Krabbamein fer ekki í frí vekur athygli á því að þó að fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí. Starfsemi og þjónusta getur oft verið minni yfir sumartímann hjá þjónustuaðilum sem sinna krabbameinsgreindum og aðstandendum. Þó að þjónustan sé takmarkaðri þá skiptir máli hvert hægt sé að leita læknishjálpar, ráðgjafar og stuðnings og Kraftur hefur því tekið saman opnunartíma hjá þessum þjónustaðilum.

Upplýsingar

Dagsetning:
12. ágúst 2020
Tímasetning:
17:15 - 19:15
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/263974264860156/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Skemmtigarðurinn Grafarvogi
112 Reykjavík, 112 Iceland + Google Map
View Staðsetning Website