Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti á aðventunni á Akureyri

8. desember 2019 @ 13:00 - 17:00

Við bjóðum unga sem aldna velkomna í Brekkuskóla á Skólastíg á Akureyri á annan í aðventu þ.e. sunnudaginn 8. desember milli klukkan 13 og 17. Þá ætlum við að perla saman afmælisarmbönd í tilefni af 20 ára afmæli félagins. Armböndin eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Þú getur lagt hönd á perlu á aðventunni og þar með hjálpað okkur að hjálpa ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum. Njóttu þess að gefa af þér í aðdraganda jólanna en allur ágóði af sölu armbandanna rennur í starfsemi félagsins. Afmælisarmbandið verður í forsölu á staðnum en þau koma í takmörkuðu upplagi og eru með áletruninni „Lífið er núna“. Tilvalin jólagjöf sem gefur af sér.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni.

KOMDU OG PERLAÐU AF KRAFTI

Upplýsingar

Dagsetning:
8. desember 2019
Tímasetning:
13:00 - 17:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/2879157502129537/

Staðsetning

Brekkuskóli
Við Skólastíg
Akureyri, Akureyri 600 Iceland
+ Google Map