Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með Akranesi og ÍA

2. júlí 2018 @ 15:00 - 19:00

Komdu og hjálpaðu Akranesingum og ÍA að ná perlubikarnum til sín!

Mánudaginn 2. júlí milli kl. 15 – 19 í hátíðarsalnum í Íþróttabandalagi Akranes, Vesturgötu, ætlar íþróttafélagið ÍA að reyna við Perlubikarinn svokallaðan. En Perlubikarinn hlýtur það íþróttafélag og/eða bæjarfélag sem nær að perla, á fjórum klukkustundum, flest armbönd til styrktar Krafti.

Með því að taka þátt í viðburðinum geta Akranesingar og ÍA átt möguleika á að hreppa perlubikarinn en til þess þarf að perla meira en 2308 armbönd á fjórum tímum en það met settu Sunnlendingar 20. júní síðastliðinn. Sunnlendingar náðu þá bikarnum af Akureyringum og munaði aldeilis mjóu þar sem Akureyringar voru með 2302 perluð armbönd. HK-ingar reyna við bikarinn 27. júní en Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Akranesinga og ÍA, leikmenn og stuðningsmenn, að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
2. júlí 2018
Tímasetning:
15:00 - 19:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/226813578043980/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

íþróttabandalag Akraness
Vesturgötu 130
Akranes, 300 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website