Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti með Fram

11. júlí 2018 @ 15:00 - 19:00

Komdu og hjálpaðu Fram að ná perlubikarnum til sín!

Miðvikudaginn 11. júlí milli kl. 15 – 19 í íþróttahúsi Fram í Safamýri ætlar Knattspyrnufélaginu Fram að reyna við Perlubikarinn svokallaðan. En Perlubikarinn hlýtur það íþróttafélag og/eða bæjarfélag sem nær að perla, á fjórum klukkustundum, flest armbönd til styrktar Krafti.

Með því að taka þátt í viðburðinum getur Fram átt möguleika á að hreppa perlubikarinn en til þess þarf að perla meira en 2308 armbönd á fjórum tímum en það met settu Sunnlendingar 20. júní síðastliðinn. Sunnlendingar náðu þá bikarnum af Akureyringum og munaði aldeilis mjóu þar sem Akureyringar voru með 2302 perluð armbönd. Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd.

Armböndin sem um ræðir eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings Krafti og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Fram, leikmenn og stuðningsmenn, að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
11. júlí 2018
Tímasetning:
15:00 - 19:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/2114170298819433/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Fram
Safamýri 26
Reykjavik, 108 Iceland
+ Google Map