Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.
Event Series Event Series: Stuðningsfulltrúa-námskeið

Stuðningsfulltrúa-námskeið

26. september 2019 @ 17:00 - 21:00

Vilt þú nýta þína reynslu til að hjálpa öðrum í svipuðum sporum?

Næsta stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í Stuðningsnetinu verður haldið í tveimur pörtum fimmtudagana 19.september og 26.september, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafarþjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Boðið verður upp á kvöldmat bæði kvöldin í boði Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira. Mælst er til þess að liðin séu a.m.k. tvö ár frá því að meðferð lauk en hvert tilfelli er metið fyrir sig

Námskeiðið er bæði ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein og hafa lokið við krabbameinsmeðferð sem og aðstandendum, sem vilja styðja við einstaklinga sem eru í svipuðum sporum.

Til að taka þátt á námskeiðinu þarf að skrá sig á netfanginu salfraedingur@kraftur.org eða með því að fylla út þetta skráningarform.

Frekari upplýsingar má sjá hér.

„Það sem hjálpaði mest var að hitta aðra sem höfðu lent í svipuðum sporum, Kraftur bjargaði geðheilsunni minni….“

26 ára félagsmaður sem greindist með ristilkrabbamein

Upplýsingar

Dagsetning:
26. september 2019
Tímasetning:
17:00 - 21:00
Series:
Vefsíða:
https://www.kraftur.org/thjonusta/studningsnet-krafts/umsokn-um-ad-gerast-studningsfulltrui/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website