Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Sumargrill Krafts

25. júní 2020 @ 18:00 - 20:00

Sumargrill Krafts verður haldið hátíðlega í Guðmundarlundi þann 25. júní milli 18 og 20.

Frábær dagskrá:

  • Jói P og Króli
  • Hoppukastalar frá Sprell
  • Sirkus Íslands
  • Reiðskólinn Hestalíf
  • Hamborgarar frá Búllunni 

Þetta verður dásamlegur dagur fyrir alla fjölskylduna og hvetjum við gamla sem og nýja félagsmenn að fjölmenna og fagna með okkur í sumarblíðunni.

Endilega meldið ykkur á viðburðinn hér svo við vitum ca. hversu margir koma. 

LEIÐARLÝSING Í GUÐMUNDARLUND
Guðmundarlundur er rétt hjá hesthúsunum við Heimsenda í Kópavogi (Elliðavatns megin). Breiðholtsbraut er ekin í átt að Víðidal, beygt á ljósunum við Vatnsendahvarf (hjá nýju World Class og Bónus). Keyrt er eftir Vatnsendavegi þar til komið er í þriðja hringtorgið þá er tekin síðasta beygjan að Þingmannaleið. Þar er skilti sem segir Heimsendi. Sú gata er keyrð þar til Heimsendi er á hægri hönd og þá á að vera skilti á vinstri hönd sem segir Guðmundarlundur. Keyrt upp á hæðina þar til komið er að skógræktarsvæði með grænu hliði, þar er Guðmundarlundur. Við munum líka setja appelsínugular blöðrur til að vísa þér leiðina.

Hlökkum til að sjá ykkur í lundinum góða ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
25. júní 2020
Tímasetning:
18:00 - 20:00
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/2000500736759920/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Guðmundarlundur
Guðmundrarlundur
Kópavogur, 203 Iceland
+ Google Map
View Staðsetning Website