Verið velkomin á spilakvöld með ungliðum í Krafti!
Á miðvikudaginn í næstu viku þann 24. október ætlum við að bretta upp ermar og spila af kappi í húsnæði Krafts að Skógarhlíð. Alls konar skemmtileg spil í boði og fólk getur líka komið með sín eigin.
Spilakvöldið er að sjálfsgöðu félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Ungliðar í Krafti er hópur fyrir ungt fólk á aldrinum 18 – 29 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Hópurinn hittist öllu jöfnu tvisvar í mánuði. Umsjón með hópnum hefur Berglind Þóra Haraldsdóttir.
Hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn hér:
https://www.facebook.com/groups/316463201785345/