Skip to main content

Fá LífsKraft sendan

Kraftur gefur út handbókina LífsKraftur sem inniheldur hagnýtar upplýsingar fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein, aðstandendur þeirra og vini.

Tilgangur þessarar útgáfu er að safna saman á einn stað upplýsingum, fræðsluefni og bjargráðum sem koma að gagni fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur. Bókin er eftir sem áður handbók um flest sem viðkemur krabbameini og þær hugleiðingar sem fólk hefur um krabbamein. Þú getur skoðað rafræna útgáfu af bókinni hér.

Undirtitill bókarinnar er einmitt Fokk ég er með krabbamein sem er jú oftast það fyrsta sem kemur upp í kollinn á fólki þegar það greinist með krabbamein.

LífsKraftur er gjöf Krafts til þín!

Einungis þarf að greiða undir sendingarkostnað.