Það skiptir okkur máli að standa við bakið á okkar félagsmönnum. Kraftur veitir félagsmönnum sínum eftirfarandi styrki:

It is important to us to stand behind and support our members. Kraftur provides its members with the following grants:

Styrktarsjóður Krafts

Styrktarsjóðnum er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og lent hefur í fjárhagslegum erfiðleikum vegna veikinda sinna.

The Grant Fund is intended to support young people who have been diagnosed with cancer and are experiencing financial hardship as a result of their illness. 

Frjósemissjóður

Frjósemissjóði Krafts er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og þarf á frjósemismeðferð að halda vegna veikindanna. Þannig getur Kraftur hjálpað þeim að standa straum af kostnaði sem fellur til vegna frjósemismeðferða.

Kraftur’s Fertility Fund is intended to support young people who have been diagnosed with cancer and require fertility treatment as a result of their illness. Through this fund, Kraftur helps cover the costs associated with fertility preservation and fertility treatment.

Menntasjóður

Menntasjóði Krafts er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein til náms og hjálpa þeim þannig að fóta sig í lífinu í kjölfar veikinda. Sjóðurinn er þannig hvatning til þess að hefja nám og öðlast færni sem styður við þátttöku í samfélaginu.

Kraftur’s Education Fund is intended to support young people who have been diagnosed with cancer in pursuing their education, helping them rebuild their lives after their illness. The fund is designed to encourage members to begin or continue their studies and develop skills that support their participation in society.

Styrkur til lyfjakaupa

Lyfjakostnaður er umtalsverður hjá þeim sem greinst hafa með krabbamein og þrátt fyrir að Sjúkratryggingar taki þátt í lyfjakostnaði, skv. reglugerð þar um, eru fjölmörg lyf sem krabbameinsgreindir þarfnast sem ekki eru niðurgreidd. Kraftsfélagar geta sótt um styrk  til félgsins til kaupa á lyfjum sem tengjast sjúkdómi þeirra. Styrkurinn er samstarfsverkefni Krafts og Apótekarans.

Medication costs can be substantial for people diagnosed with cancer. Although the national health insurance system contributes to the cost of many prescription medicines in accordance with applicable regulations, a number of medications needed by cancer patients are not subsidized. Members of Kraftur can apply for a grant to help cover the cost of medications related to their illness. This grant is a collaborative initiative between Kraftur and Apótekarinn.

Styrkur til útfarar

Tilgangur sjóðsins er að styrkja aðstandendur til að standa straum af útfararkostnaði þegar félagsmaður Krafts fellur frá vegna krabbameins eða afleiðingum þess. Útfararkostnaður er oft mjög mikill og bætist við þann kostnað sem þegar hefur verið greiddur vegna undanfarinna veikinda hins látna.

The purpose of this fund is to provide financial support to the families and loved ones of Kraftur members to help cover funeral expenses when a member passes away due to cancer or its complications. Funeral costs can be significant and often add to the financial burden already incurred during the member’s illness.

Óskabrunnurinn

Óskabrunnur Krafts er ætlað að létta líf greindra félagsmanna sem eru inniliggjandi á heilbrigðisstofnun, vegna meðferðar, afleiðinga veikindanna eða njóta aðhlynningar í heimahúsi. Með því að verða við óskum þeirra vonumst við til að gera stundir þeirra bærilegri og skapa góðar minningar á erfiðum tímum.

Kraftur’s Wishing Well is designed to brighten the lives of members who have been diagnosed with cancer and are receiving inpatient treatment, undergoing care for the effects of their illness, or receiving palliative or supportive care at home. By fulfilling their wishes, we hope to make their days a little easier and create meaningful memories during a difficult time.