Framundan hjá Krafti 🧡
Strákakraftur 30. september: Matur og minigolf í Minigarðinum!
Endurnærandi helgi fyrir norðan 2. – 4. október: Kraftur býður félagsfólki og aðstandendum á endurnærandi helgi á Helgafell retreat center. Markmiðið með helginni er að staldra við og hlúa að sjálfum sér í nærandi umhverfi og koma endurnærður til baka.
Kraftur for English speakers on October 8th: We’ll meet at Oché in Kringlan. Nina, a social worker from Krabbameinsfélagið, will talk a little about rights during illness while we enjoy good food and afterwards, we’ll play darts together!
Kröftug kvennastund 15. október: Kröftug kvennastund verður haldin hátíðleg í Tónabíó, fimmtudaginn 15. október kl. 19:30. Kröftugar konur stíga á svið og segja frá sinni reynslu af krabbameini. Nánari upplýsingar koma fljótlega en við vonumst til þess að sjá sem flestar.
Flot með Flothettu 29. október: Dásamleg stund þar sem djúpslökun, vellíðan og endurnæring er í fyrirrúmi.
Strákakraftur: Nánari upplýsingar koma fljótlega.