Kraftur í samstarfi við Krabbameinsfélagið býður upp á stuðning og ráðgjöf fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur. Hér að neðan getur þú valið og sótt um þann stuðning og ráðgjöf sem hentar þér.

Stuðningsviðtal – varst þú eða ástvinur að greinast?

Kraftur veitir viðtal til þeirra sem eru að fóta sig í nýjum aðstæðum í kjölfar greiningar. Í viðtalinu er farið yfir þá þjónustu og stuðning sem er í boði fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem og hluti sem vert er að hafa í huga í kjölfar greiningar.

Náms- og starfsráðgjöf

Hjá Krafti er starfandi nám- og starfsráðgjafi sem hægt er að leita til, til að fá aðstoð við að taka næstu skref í að fara aftur í nám eða vinnu eftir veikindi. Mögulega vilja einstaklingar breyta til eftir veikindin og þá er gott að fá góð ráð og sjá hvað er hægt að gera.

Sálfræðiþjónusta

Hjá Krabbameinsfélaginu starfa sálfræðingar sem veita sálfræðimeðferð bæði fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein sem og aðstandendur. Hjá sálfræðingi er einnig hægt að fá fjölskylduviðtal. Sálfræðiþjónustan hentar þeim sem takast á við erfiða líðan í kjölfar veikinda.

Félagsráðgjöf

Hjá Krabbameinsfélaginu starfa félagsráðgjafar sem aðstoða með félagsleg úrræði og réttindamál svo sem veikindarétt, sjúkrasjóð og fleira. Þeir aðstoða krabbameinsgreinda og fjölskyldur þeirra að takast á við fjárhags – og félagslegar breytingar.

Hagsmunamál

Hjá Krafti aðstoðum við félagsmenn með réttindamál og gætum hagsmuna félagsmanna. Það er erfitt að standa einn í því að berjast á móti kerfinu. Hjá Krafti getur þú fengið viðtal við hagsmunafulltrúa félagsins sem aðstoðar þig með næstu skref.

Óska eftir stuðningi og ráðgjöf