Laufey Tinna Guðmundsdóttir greindist með brjóstakrabbamein og þurfti að gangast undir harða meðferð. Í meðferðarferlinu fannst henni hvað erfiðast að missa hárið en á síðari stigum meðferðar notaði hún kælihettu til þess að koma í veg fyrir hármissi. Það var henni hjartans mál að aðrir gætu nýtt sér slíkar hettur sem eru þó fremur kostnaðarsamar. Þegar Laufey Tinna lést árið 2026 fór fjölskylda hennar af stað með fallegt verkefni í hennar nafni. Ástvinir Laufeyjar styrktu Kraft um kaup á kælihettum til láns til þeirra sem vilja nýta þær í meðferðarferlinu.
Kælihettur eru nú notaðar í miklum mæli til þess að koma í veg fyrir hárlos á meðan á lyfjameðferð stendur. Kælingin takmarkar blóðflæði í hársvörðinn og kemur þannig í veg fyrir að lyfin berist á það svæði. Notkun getur verið flókin og tímafrek en getur í sumum tilfellum komið í veg fyrir mikinn hármissi.
ATH! Við mælum með því að nota kælihetturnar aðeins í samráði við þinn krabbameinslækni.
Félagsfólk Krafts á aldrinum 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein getur óskað eftir kælihettum til láns í gegnum umsóknarformið hér fyrir neðan. Ef hetturnar eru lausar á umbeðnu tímabili fær viðkomandi upplýsingapóst og getur sótt lánsfenginn til okkar.
Auk kælihettanna getur félagsfólk fengið hárkollur að láni sem hægt er að nálgast á skrifstofu Krafts í Skógarhlíð 8.
Leiðbeiningar l Instructions
*
Laufey Tinna Guðmundsdóttir was diagnosed with breast cancer and underwent intensive treatment. During her treatment, she found losing her hair to be one of the most difficult aspects. In the later stages of her treatment, she used a scalp cooling cap to help prevent hair loss. It was very important to her that other women would also have access to these caps, which are unfortunately quite expensive.
When Laufey Tinna passed away in 2026, her family requested that people refrain from sending flowers or wreaths. Instead, they wanted to create a meaningful project in her memory. Her loved ones donated funds to Kraft to purchase scalp cooling caps that could be loaned to individuals who wish to use them during their cancer treatment.
Scalp cooling caps are now widely used to help prevent hair loss during chemotherapy. By cooling the scalp, they reduce blood flow to the area, limiting the amount of chemotherapy medication that reaches the hair follicles. While using a cooling cap can be time-consuming and somewhat complex, it can significantly reduce hair loss for some people.
NOTE: We recommend only using cooling caps in consultation with your oncologist.
Kraftur members between the ages of 18 and 40 who have been diagnosed with cancer may apply to borrow a scalp cooling cap by completing the application form below. If a cap is available during the requested treatment period, the applicant will receive an email with further information and can collect the loaned equipment from our office.
In addition to scalp cooling caps, Kraft members may also borrow wigs, which can be collected from the Kraft office at Skógarhlíð 8.