Mikilvægt er að vera í góðu sambandi við skóla og kennara varðandi námið þitt og framvindu.
Ef að þú nærð ekki vegna veikinda þinna að skila einingum sem krafist er til að fá áframhaldandi greiðslur frá Lín geturðu sótt um undanþágu. Sækja þarf sérstaklega um það og skila inn viðeigandi gögnum. Sömu reglur gilda þegar þú getur ekki greitt afborganir af námsláninu þínu vegna veikinda.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Lánasjóðs íslenskra námsmanna.