Óskabrunni Krafts er ætlað að létta líf krabbameinsgreinds félagsfólks á aldrinum 18-40 ára sem er inniliggjandi á heilbrigðisstofnun, vegna meðferðar eða afleiðinga veikindanna eða njóta aðhlynningar í heimahúsi.

Félagsfólk getur sjálft óskað sér úr Óskabrunninum en aðstandendur og starfsfólk viðeigandi heilbrigðisstofnana getur einnig sent inn óskar fyrir þeirra hönd. Óskirnar geta verið hverjar sem er og mun Kraftur reyna eftir fremsta megni að verða við þeim. Með því að uppfylla óskir þeirra vonumst við til þess að geta bætt líðan félagsfólks, stytt þeim stundir og skapað góðar minningar á erfiðum tímum.

Dæmi um óskir:

  • Dekur, eins og nudd eða fótsnyrting
  • Flutningur frá listamanni
  • Heimilisþrif
  • Fjölskyldumyndataka
  • Heimsend máltíð frá uppáhalds veitingastaðnum
  • Leikhúsferð
  • Þyrluflug eða önnur ævintýri

 

Verndarar Óskabrunnsins eru hlaupahópurinn HHHC sem hljóp í BOSS jakkafötum nokkur maraþon áður en þeir hlupu sjálft Reykjavíkurmaraþonið árið 2023. Það gerðu þeir til styrktar Krafti og söfnuðu rúmum 8 milljónum sem er stofnfé Óskabrunnsins.