Að greinast ungur með krabbamein getur sett allt lífið úr skorðum. Breyttur veruleiki getur þyngt sporin aftur út í lífið og viljum við því gera það sem við getum til þess að létta þau.

Menntasjóði Krafts er ætlað að styrkja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein til náms og hjálpa þeim þannig að fóta sig í lífinu í kjölfar veikinda. Sjóðurinn er þannig hvatning til þess að hefja nám og öðlast færni sem styður við þátttöku í samfélaginu.

 

Kraftur Education Fund

Being diagnosed with cancer at a young age can disrupt every aspect of a persons life. This changed reality can make the path back into everyday life more difficult, and we therefore want to do what we can to make that journey easier.

The Kraftur Education Fund is intended to support young people who have been diagnosed with cancer by providing financial assistance for education, helping them regain their footing in life following illness. The fund serves as encouragement to pursue education and develop skills that support active participation in society.

Hægt er að fá aðstoð við öflun gagna og útfyllingu umsóknar hjá starfsfólki Krafts eða félagsráðgjafa með því að senda okkur póst á kraftur@kraftur.org