Stuðningsfélagið Kraftur var stofnað 1. október 1999 og hefur það að leiðarljósi að beita sameinuðum kröftum sínum til að aðstoða og styðja ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Félagið var stofnað af fólki sem fannst vanta stuðning og fræðslu fyrir fólk sem væri að greinast með krabbamein á yngri árum. Félagið er fyrir fólk á aldrinum 18 – 40 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur á öllum aldri alveg frá 18 ára og upp úr.

Meginmarkmið Krafts eru að styðja við ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur með því að halda úti jafningjastuðningi, hagsmunagæslu, öflugri fræðslu, fjárhagslegum stuðningi, samveru á jafningjagrunni, veita hagnýtar upplýsingar og stuðla að samvinnu félagasamtaka, heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem koma að málefnum þeirra sem tengjast sjúkdómnum. Kraftur er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands.

Félagið er rekið af starfsmönnum og sjálfboðaliðum. Hjá félaginu eru starfsmenn í fjórum stöðugildum en einnig eru verktakar sem sinna hinum ýmsu störfum svo sem þjónustu við félagsmenn, markþjálfun, líkamlegri þjálfun, kynningarmálum og fræðslu svo eitthvað sé nefnt.

Í myndbandinu hér að neðan má kynnast starfsemi félagsins betur og hvernig það hefur breyst í gegnum tíðina. Myndbandið er heimildarmynd sem var gerð í tilefni af 20 ára afmæli Krafts árið 2019 og spannar sögu Krafts í máli og myndum.