Það getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu og þú ert að ganga í gegnum, einhvern sem hefur þann skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálfur. Kraftur býður upp á jafningjastuðning fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur. Þeir sem veita stuðninginn eru einstaklingar sem greinst hafa með  krabbamein eða eru aðstandendur. Þeir hafa allir lokið stuðningsfulltrúanámskeiði.

Hvað er Stuðningsnetið?

Ef þú hefur áhuga á að ræða við stuðningsfulltrúa getur þú haft samband í síma 866 9618 á mánudögum og þriðjudögum frá kl. 8:30 til 16:30. Einnig er hægt að senda inn beiðni með því að smella hér. Þorri Snæbjörnsson, umsjónarmaður Stuðningsnetsins, svarar öllum beiðnum um jafningjastuðning. Stuðningurinn getur farið fram í síma, í tölvupósti  eða þið getið mælt ykkur mót. Þú getur óskað eftir því að fá að ræða við einhvern sem er á svipuðum aldri og þú, af sama kyni, og/eða hefur greinst með sömu tegund krabbameins. Reynt er að verða við óskum þínum ef hægt er.

Öll samtöl eru trúnaðarmál.

Viltu gerast stuðningsfulltrúi?

Til að gerast stuðningsfulltrúi þurfa að minnsta kosti tvö ár að vera liðin frá því að þú laukst krabbameinsmeðferð. Ef þú ert aðstandandi er einnig æskilegt að tvö ár séu liðin frá því að meðferð var lokið. Það er nauðsynlegt að þú sért einnig að mestu búin(n) að vinna úr þeim tilfinningum sem krabbameinið hafði í för með sér svo þú eigir auðveldara með að styðja aðra. Það er kostur ef þú ert hlýleg(ur), næm(ur) á líðan annarra, einlæg(ur), sveigjanleg(ur), dæmir ekki og átt auðvelt með að hlusta á aðra.

Hafir þú áhuga á að gerast stuðningsfulltrúi getur þú sótt um með því að smella hér. Eftir að þú hefur fyllt út umsóknina og sent hana inn, mun Þorri, umsjónarmaður Stuðningsnetsins, hafa samband við þig. Í framhaldi mun hann boða þig í viðtal þar sem þið farið yfir umsóknina og reynslu þína af krabbameini. Ef niðurstaða ykkar beggja er sú að þú sért tilbúin(n) til að gerast stuðningsfulltrúi þá er næsta skref að sitja stuðningsfulltrúnámskeið á vegum Krafts. Námskeiðið tekur tvö til þrjú kvöld. Þegar því er lokið getur þú hafið sjálfboðastarf sem stuðningsfulltrúi. Öllum stuðningsfulltrúum býðst einstaklingshandleiðsla frá umsjónarmanni Stuðningsnetsins. Stuðningsfulltrúar sækja fræðslufund/hóphandleiðslu tvisvar á ári.