NorðanKraftur er stuðningshópur fyrir ungt fólk á aldrinum 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Hópurinn er starfræktur á Akureyri og er samstarfsverkefni Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur og Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis (KAON).
Inga Bryndís Árnadóttir hefur umsjón með Norðankrafti og eru viðburðir stuðningshópsins auglýstir á heimasíðu Krafts, á Abler og á Facebook síðu NorðanKrafts.
Hægt er að hafa samband vegna Norðankrafts í gegnum netfangið kraftur@kraftur.org eða í síma 866-9600.