Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Perlað af Krafti á Akranesi

8. janúar 2020 @ 16:30 - 20:00

Kraftur leggur leið sína vestur og perlar með Akranesi og nágrenni miðvikudaginn 8.janúar kl. 16:30 – 20:00 í Grundaskóla á Akranesi.

Með því að taka þátt í viðburðinum eru þið að hjálpa okkur að standa við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þess þar sem armböndin eru seld til styrkar félaginu.

Armböndin sem um ræðir eru í sannkölluðum norðurljósalitum og eru sérstök afmælisarmbönd í tilefni 20 ára afmæli Krafts. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir.

Við hvetjum Akranesbúa og nærbyggð að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Upplýsingar

Dagsetning:
8. janúar 2020
Tímasetning:
16:30 - 20:00