Krabbamein hefur áhrif á kynlíf, getu og löngun. Hjá Landspítalanum og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins eru starfandi kynfræðingar sem veita ráðgjöf og fræðslu fyrir krabbameinsveika og aðstandendur.
Kraftur, Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins og Ljósið bjóða reglulega upp á fræðslufyrirlestra um kynlíf og krabbamein.