Sem félagsmaður hjá Krafti nýtur þú góðs af jafningjastuðningi, hagsmunagæslu, fræðslu, fjárhagslegum stuðningi og samveru á jafningjagrunni með ungu fólki á aldrinum 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein eða með aðstandendum 18 ára og eldri.
Áherslur okkar í þjónustu:
- Að veita andlegan og félagslegan stuðning við ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur
- Að veita fjárhaglegan stuðning í gegnum Styrktarsjóð, Minningarsjóð og styrk til lyfjakaupa í samstarfi við Apótekarann
- Að halda úti fræðslu í formi fyrirlestra, fræðsluvefs, bóka og bæklinga
- Að gæta hagsmuna félagsmanna almennt gagnvart opinberum aðilum og miðla upplýsingum um réttindi þeirra
- Skapa upplifanir sem minna á að njóta líðandi stundar – Lífið er núna
- Aðstoða unga krabbameinsgreinda við að komast aftur út í lífið og veita upplýsingar um mögulega endurhæfingu og aðstoð
- Fræða almenning um hin ýmsu málefni sem snerta ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur