Kæru félagar og stuðningsmenn hlaupara!
Hvetjum ykkur til að mæta með læti á laugardaginn 18.ágúst og hvetja þá fjölmörgu hlaupara sem eru að fara hlaupa fyrir Kraft og Krabbameinsfélagið í Reykjavíkurmaraþoninu.
Félögin verða með hvatningarstöð á Ægissíðunni við Dunhaga. Þetta mun örugglega ekki fara fram hjá ykkur þar sem við sem fánar og bannerar félaganna verða mjög sýnilegir
Maraþonið og 1/2 maraþonið er ræst kl. 8:40 og 10 km. hlaupið er ræst kl. 9:35 svo gott er að mæta ekki mikið seinna en kl. 9:30 en starfsfólk Krafts og KÍ verður mætt kl. 8:30 fyrir “early birds”. Fólki er frjálst að koma og fara og þarf alls ekki að vera allan tímann 🙂
Boðið verður upp á kaffi og meððí fyrir hvatningarliðið okkar 🙂
Minnum ykkur á lokanir gatna vegna maraþonsins en upplýsingar um það má finna hér: https://www.rmi.is/truflun-a-umferd eða hér: https://menningarnott.is/sites/default/files/skjol/hof_krt_hatidarsvedi_menningarnott_0618_islenska_v2_0.pdf
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Huldu framkvæmdastjóra Krafts í síma: 866 9600.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest 🙂