StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 til 40 ára sem greinst hafa með krabbamein.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein er svo gott að geta hitt jafningja í sömu sporum, deila reynslu og fá stuðning frá hvor öðrum. Einstaklinga sem hafa skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálfur.
Hópurinn hittist annan hvern miðvikudag. Dagskrá og staðsetning má sjá undir viðburðir.
Umsjón með hópnum hefur Rakel María Eggertsdóttir starfsmaður Krafts. Hún hefur reynslu af því að greinast ung með krabbamein.