- Þessi viðburður er liðinn.
Örráðstefnan – Fokk ég er með krabbamein

Í tilefni af 20 ára afmæli Krafts verðum við nú með örráðstefnu þann 20. mars sem ber nafnið:
– Fokk ég er með krabbamein!
Örráðstefnan hefst klukkan 17:15 í Stúdentakjallaranum þann 20. mars en við munum fá ýmsa í lið með okkur.
Meðal efnis verður:
-
-
-
Af hverju kraftur?
- Hildur Björk Hilmarsdóttir og Daníel Reynisson, frumkvöðlar Krafts, munu fara yfir stöðuna eins og hún var fyrir 20 árum síðan og hvað hefur áunnist og í raun af hverju við þurfum á félagi eins og Krafti á að halda.
-
Er betra að greinast með krabbamein í Danmörku?
- Signe Thydal, verkefnastjóri Ungkræft, systurfélags Krafts í Danmörku segir okkur frá því hvernig staðan sé í Danmörku og hvernig þau beita sér í baráttunni gegn krabbameini.
-
hvað hefur áunnist og hvað má betur fara?
- Hulda Hjámarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts ræðir um hvað hefur áunnist í hagsmunamálum sem og öðrum málum sem og hvað stendur út af og hvað megi betur fara. Er eitthvað sem við getum lært af frændum okkar á Norðurlöndunum?
-
Hvað hefur Kraftur gert fyrir mig!
- Nokkrir Krafsfélagar miðla reynslu sinni.
-
-
Fjölmiðlamaðurinn, Atli Már Steinarsson, verður fundarstjóri og mun Ragnheiður Gröndal einnig flytja nokkur lög.
Örráðstefnan er að sjálfsögðu ókeypis og opin öllu. Unnt verður að kaupa sér veitingar á góðu verði á svæðinu.
Við hlökkum til að sjá þig
Ekki örvænta ef þú kemst ekki í Stúdentakjallarann þar sem viðburðurinn verður streymt beint á Facebook síðu Krafts.