Krabbameinsmeðferðir reyna mjög á líkamann og fylgja þeim ýmsar aukaverkanir. Sumir fá miklar aukaverkanir meðan aðrir fá minni. Aukaverkanir geta varað í lengri eða skemmri tíma og sumir þjást af afleiðingunum til æviloka. Aukaverkanir geislameðferða koma oft 1-2 vikum eftir að meðferð hefst. Síðbúnir fylgikvillar krabbameinsmeðferðar geta komið fram löngu síðar.
Aukaverkanir geta verið mismunandi eftir einstaklingum sem og meðferðunum.
Aukaverkanir vegna lyfjameðferða geta verið:
- Þreyta
- Ónæmiskerfið veikist og því hætta á að þú veikist auðveldlega af smitsjúkdómum og pestum
- Bragðskynið minnkar eða breytist
- Ógleði
- Lystarleysi
- Niðurgangur eða hægðatregða
- Hármissir
- Augnþurrkur og munnþurrkur
- Heilaþoka/heilaslæða (e. chemobrain), til dæmis minnisleysi, einbeitingarleysi, athyglisskortur og málstol
- Tannskemmdir
- Doði í útlimum
- Ófrjósemi
- Áhrif á kynhvöt
Aukaverkanir vegna geislameðferðar
– geta komið fram 1-2 vikum eftir að meðferð hefst:
- Rauð og þrútin húð
- Brennd húð
- Sogæðabjúgur
- Þreyta
- Ógleði eða skert matarlyst
- Getur haft áhrif á beinmerg