- Þessi viðburður er liðinn.
StelpuKraftur – Stuðningshópur

Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.
StelpuKraftur er stuðningshópur fyrir ungar konur á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist annan hvern mánudag kl. 17 ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Dagskrá – júní
Mán. 8. jan. – Hittingur í Grasagarðinum
- Við ætlum að njóta þess að hittast í Grasagarðinum og eiga huggulega stund í gróðursælli náttúrunni. Hittumst við innganginn inn í Grasagarðinn.
Umsjón með hópnum hefur, Elín Kristín Klar, ráðgjafi, og Hulda Hjálmarsdóttir, starfsmaður og félagsmaður hjá Krafti.
Frekari upplýsingar og hægt að óska eftir inngöngu í FB – hóp StelpuKrafts.