- Þessi viðburður er liðinn.
Aðalfundur Krafts 2021

Aðalfundur Krafts verður haldinn þriðjudaginn 27.apríl í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8 og hefst kl. 18:00.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins starfsárs.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Kjör formanns til tveggja ára.
- Kjör fjögurra manna í stjórn til tveggja ára og tveggja varamanna til eins árs.
- Kjör löggilts endurskoðanda reikninga félagsins. Skoðunarmenn reikninga kynntir.
- Ákvörðun um félagsgjald.
- Önnur mál.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa skuldlausir félagsmenn.
Óskað er eftir framboðum til stjórnar samkvæmt dagskrá. Sem fyrr segir er óskað eftir formanni, þremur aðalmönnum í stjórn og tveimur varamönnum.
Framboð skulu berast til framkvæmdastjóra á netfangið hulda@kraftur.org þar sem fram kemur nafn, kennitala og upplýsingar um viðkomandi. Framboð skulu berast eigi síðar en sun. 25.apríl.
Skráning nauðsynleg! Ef félagið sér sér ekki fært um að halda aðalfund með þeim sóttvarnartakmörkunum sem eru í gildi (þær breytast eða of margir á fundi) þá áskiljum við okkur rétt til að færa fundinn alfarið í stafræna heima.
Við hvetjum alla félagsmenn til að fjölmenna á aðalfund félagsins hvort sem er í persónu eða rafrænt.