- Þessi viðburður er liðinn.
Ganga upp á Mosfell í Mosfellsbæ – Að klífa brattann

Næsta ganga gönguhópsins Að klífa brattann verður laugardaginn 27. ágúst kl. 11.
Við ætlum að ganga upp á Mosfell í Mosfellsbæ og taka smá hring þar í kring. Gangan er á erfiðleikastigi 1 og hentar því flestum getustigum en fyrir suma væri gott að hafa meðferðis göngustafi. Hækkunin er rétt um 200 metrar.
VIÐ ÆTLUM AÐ HITTAST VIÐ MOSFELLSKIRKJU
Ef þið viljið sameinast í bíla endilega látið okkur vita
Atli Már Sveinsson þjálfari FítonsKrafts mun leiða gönguna. En síminn hjá honum er 663-2252 ef eitthvað er.
Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja. Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin.