Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi. Ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum
Aðstandendakvöldið fer fram í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Ávallt heitt á könnunni og boðið er upp á léttar veitingar.
Hlökkum til að sjá þig ❤
Umsjónarmenn hópsins er Inga Bryndís Árnadóttir starfsmaður Krafts en hún hefur reynslu af því að vera ung og greinast með æxli.
Sendu endilega fyrirspurn á kraftur@kraftur.org eða hringdu í síma 866-9600 ef þig vantar einhverjar upplýsingar en einnig er hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.