StrákaKraftur er stuðningshópur fyrir unga stráka á aldrinum 18 – 45 ára sem greinst hafa með krabbamein. Hópurinn hittist tvisvar í mánuði ýmist í húskynnum Krafts, Skógarhlíð 8, eða annarsstaðar.
Við ætlum að starta þessum vetri með bombu og fáum Dóra DNA til að fara með smá gamanmál fyrir hópinn. Að því loknu ætlar Róbert Jóhannsson nýr umsjónarmaður StrákaKrafts að fara yfir dagskrá vetrarins og spjalla við hópinn. Léttar veitingar í boði.
Umsjón með hópnum hefur Róbert Jóhannsson, félagsmaður hjá Krafti.
Frekari upplýsingar um viðburði verða settar inn á FB – hóp StrákaKrafts og er hægt að óska eftir inngöngu í hópinn hér.
Þegar maður er ungur og greinist með krabbamein skiptir svo miklu máli að vita hvert maður getur leitað og maður standi ekki einn í baráttunni.