1.GR
Sjóðurinn heitir Menntasjóður Krafts og er eign Krafts – Stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur.
The fund is called the Kraftur Education Fund and is the property of Kraftur – the Support Organization for Young People Diagnosed with Cancer and Their Families.
2.GR
Sjóðsfé er framlag úr sjóði Krafts sem stjórn félagsins ákvarðar hvert starfsár.
The fund consists of contributions from the resources of Kraftur, as determined by the organization’s board each operating year.
3.GR
Tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk á aldrinum 18-45 ára sem greinst hefur með krabbamein til náms og þannig hjálpa þeim að fóta sig í lífinu í kjölfar veikinda.
The purpose of the fund is to support young people aged 18–45 who have been diagnosed with cancer in pursuing education, thereby helping them regain their footing in life following illness.
4.GR
Styrkir úr menntasjóði eru veittir samkvæmt umsókn í samræmi við reglur þessar og með hliðsjón af umsóknum, fyrirliggjandi gögnum og fjárhagsstöðu sjóðsins hverju sinni.
Grants from the Education Fund are awarded based on applications in accordance with these rules and with consideration of submitted applications, supporting documents, and the financial status of the fund at any given time.
5.GR
Félagsfólk Krafts á aldrinum 18-45 ára, sem greinst hafa með krabbamein, geta sótt um styrk úr Menntasjóði. Skilyrði úthlutunar er að umsækjandi sé skráður í nám eða námskeið og að umsókn samræmist tilgangi sjóðsins. Kraftur metur styrkhæfi umsækjenda með tilliti til fyrirliggjandi gagna og stöðu sjóðsins hverju sinni.
Með umsókn skulu fylgja eftirtalin gögn;
- Nýlegt læknisvottorð sem endurspeglar núverandi sjúkdómsgreiningu og/eða stöðu veikinda
- Reikningur fyrir námsgjöldum, með nafni og kennitölu umsækjanda
- Staðfesting á greiðslu námsgjalda
Members of Kraftur aged 18–45 who have been diagnosed with cancer may apply for grants from the Education Fund. A condition for receiving a grant is that the applicant is enrolled in a program of study or course and that the application aligns with the purpose of the fund. Kraftur evaluates applicants’ eligibility based on submitted documentation and the financial status of the fund at the time.
The following documents must accompany the application:
- A recent medical certificate reflecting the current diagnosis and/or status of the illness
- An invoice for tuition fees including the applicant’s name and national ID number
- Confirmation of payment of tuition fees
6.GR
Ekki er unnt að sækja um styrk vegna sama reiknings oftar en einu sinni og að hámarki 12 mánuði aftur í tímann. Þá getur umsækjandi ekki hlotið styrk úr sjóðnum hafi hann áður hlotið styrk úr sjóðnum.
It is not possible to apply for a grant for the same invoice more than once, and applications may only cover expenses incurred within the previous 12 months. Applicants are not eligible for a grant if they have already received a grant from the fund.
7.GR
Miðað skal við að umsóknir séu afgreiddar innan fjögurra vikna frá því að þær berast. Félagið áskilur sér rétt til frekar upplýsingaöflunar við afgreiðslu umsókna eftir þörfum.
Applications should generally be processed within four weeks of receipt. The organization reserves the right to request additional information when necessary during the application review process.
8.GR
Öll gögn sem Menntasjóði Krafts berast eru meðhöndluð sem trúnaðargögn og farið með þau sem slík hjá félaginu. Að lokinni úthlutun verður innsendum gögnum eytt. Félagið áskilur sér þó að halda til haga kennitölu viðkomandi, nafni og upphæð styrks til þess að hægt sé að halda utan um úthlutanir styrkja.
All documents received by the Kraftur Education Fund are treated as confidential and handled accordingly by the organization. After the allocation process is completed, submitted documents will be deleted. However, the organization reserves the right to retain the applicant’s national ID number, name, and grant amount for the purpose of maintaining records of grant allocations.
9.GR
ATH að námsstyrki þarf að gefa upp til skatts hvort sem styrkirnir eru skattskyldir eða falla undir undantekningu frá skattskyldu styrkja. Nánar: Styrkir | Skatturinn – skattar og gjöld
Please note that education grants must be reported for tax purposes, whether the grant is taxable or exempt from taxation. More information: Styrkir | Skatturinn – skattar og gjöld