Laufey Tinna Guðmundsdóttir greindist með brjóstakrabbamein og þurfti að gangast undir harða meðferð. Í meðferðarferlinu fannst henni hvað erfiðast að missa hárið en á síðari stigum meðferðar notaði hún kælihettu til þess að koma í veg fyrir hármissi. Það var henni hjartans mál að aðrar konur gætu nýtt sér slíkar hettur sem eru þó fremur kostnaðarsamar. Þegar Laufey Tinna lést árið 2026 afþakkaði fjölskylda hennar blóm og kransa og vildi heldur fara af stað með fallegt verkefni í hennar nafni. Ástvinir Laufeyjar styrktu Kraft um kaup á kælihettum til láns til þeirra sem vilja nýta þær í meðferðarferlinu.

Kælihettur eru nú notaðar í miklum mæli til þess að koma í veg fyrir hárlos á meðan á lyfjameðferð stendur. Kælingin takmarkar blóðflæði í hársvörðinn og kemur þannig í veg fyrir að lyfin berist á það svæði. Notkun getur verið flókin og tímafrek en getur í sumum tilfellum komið í veg fyrir mikinn hármissi.

Félagsfólk Krafts getur óskað eftir kælihettum til láns í gegnum umsóknarformið hér fyrir neðan. Ef hetturnar eru lausar á umbeðnu tímabili fær viðkomandi upplýsingapóst og getur sótt lánsfenginn til okkar.

Auk kælihettanna getur félagsfólk fengið hárkollur að láni sem hægt er að nálgast á skrifstofu Krafts í Skógarhlíð 8.

Óska eftir kælihettu til láns

Laufeyjarlán á kælihettum
Frá
Til