Vegna mikillar eftirspurnar af armböndunum okkar verður perlustund með Krafti mánudaginn næstkomandi. Ætlum við að perla saman í húskynnum Krafts, Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins og óskum eftir ykkar aðstoð!
Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru litrík og falleg og auðveld í samsetningu svo allir geta tekið þátt. Þau eru öll perluð í sjálfboðavinnu og því óskum við eftir kröftugum sjálfboðaliðum til að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur.
Sjálboðaliðar geta komið á milli kl. 17 og 22 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins og perlað með okkur.
Það mun vera heitt á könnunni, hlökkum til að sjá ykkur.
KOMIÐ OG PERLIÐ MEÐ KRAFTI ♥