Velkomin í klúbbinn sem enginn vill vera í

Að vera ungur og greinast með krabbamein getur sett allt lífið úr skorðum.

Gjafapokinn er okkar leið til þess að rétta fram höndina til þeirra sem greinast ungir með krabbamein og gætu þurft á stuðningi okkar að halda. Pokinn er afhendur ungu fólki sem greinist á aldrinum 18-40 ára á helstu krabbameinsdeildum landsins en hann má einnig nálgast á skrifstofu Krafts.

Hvað er í gjafapoka Krafts ?

  • Bókin Fokk ég er með krabbamein! hefur að geyma góðar og yfirgripsmiklar upplýsingar um allt það helsta sem viðkemur krabbameini, fyrir þá sem greinast og aðstandendur þeirra.
  • Kynningarbæklingar um fjölbreytta þjónustu Krafts.
  • Minnisbók og penni til að skrifa niður hugsanir og spurningar
  • Gjafabréf frá Eldum rétt
  • Storytel gjafabréf
  • Freyðitöflur frá Unbroken
  • Vörur frá Gamla Apótekinu
  • Vörur frá CeraVe
  • Ullarsokkar prjónaðir af hjartahlýjum sjálfboðaliðum
  • Lífið er núna armband
  • Lífið er núna húfa