Apótekarinn styður félagsfólk á aldrinum 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein með því að kosta lyf og aðrar vörur í verslunum Apótekarans. Lyfjakostnaður getur verið umtalsverður hjá þeim sem greinst hafa með krabbamein og erum við hjá Krafti þakklát fyrir þennan góða stuðnings Apótekarans við félagsfólk okkar.

Lyfjastyrkurinn nær til lyfseðilsskyldra lyfja sem tengjast veikindum viðkomandi, lausasölulyfja og vara frá Gamla Apótekinu.

Félagsfólk á aldrinum 18-40 ára sem greinst hefur með krabbamein getur sótt um lyfjakort hjá Krafti. (Nánar um félagsaðild hér). Uppfylli umsækjandi skilyrðin fær hann tölvupóst þegar lyfjakortið er tilbúið með leiðbeiningum til þess að setja kortið upp í síma.

Lyfjakortinu er síðan vísað fram við afgreiðslu í Apótekaranum.

 

Umsókn um lyfjakort þarf að fylgja læknisvottorð sem staðfestir krabbameinsgreiningu.

Lyfjakortið gildir í 6 mánuði í senn.

Þurfi viðkomandi að nýta lyfjaskömmtun þarf læknir að ávísa skömmtunar lyfjaávísun og hafa þarf samband við Lyfjaskömmtun í síma 544-2323 eða á lyfjaskommtun@lyfjaskommtun.is

Sé aðstandandi með lyfjaumboð getur hann sett lyfjakort viðkomandi upp í símanum sínum og vísað því fram við afgreiðslu lyfja hjá Apótekaranum.

Styrkur er veittur fyrir ódýrasta samheitalyfið hverju sinni. Þetta er gert svo hægt sé að tryggja sem flestum styrkinn þar sem mikill verðmunur getur verið á lyfjum hverju sinni. Ef viðkomandi vill ekki þiggja ódýrara samheitalyf er hægt að:

  • Þiggja styrkinn en greiða mismuninn milli samheitalyfs og frumlyfs.
  • Fá lyfið R-merkt hjá lækni.
  • Sýna fram á gildandi lyfjaskírteini frumlyfja, sem hægt er að nálgast í gegnum sinn lækni.

Fimm flokkar lyfja eru undanskilin þessum samningi:

 


 

Apótekarinn supports members aged 18–40 who have been diagnosed with cancer by covering the cost of medication and other products at Apótekarinn pharmacies. Medication costs can be significant for people diagnosed with cancer, and here at Kraftur we are grateful for Apótekarinn’s generous support of our members.

The medication support covers prescription medicines related to the individual’s illness, over-the-counter medicines, and products from Gamla Apótekið.

Members aged 18–40 who have been diagnosed with cancer can apply for a medication card through Kraftur. (More information about membership here.) If the applicant meets the requirements, they will receive an email when the medication card is ready, along with instructions on how to add the card to their phone.

The medication card is then presented at the checkout when purchasing items at Apótekarinn.

 

An application for a medication card must be accompanied by a medical certificate confirming the cancer diagnosis.

The medication card is valid for 6 months at a time.

If the individual needs medication dispensing (dose packaging), a doctor must issue a prescription specifically for medication dispensing. You must then contact Lyfjaskömmtun by phone at 544-2323 or by email at lyfjaskommtun@lyfjaskommtun.is

If a family member or caregiver has authorization to manage the individual’s medications, they can add the person’s medication card to their own phone and present it when collecting medications at Apótekarinn.

Support is provided for the least expensive generic medicine available at the time. This is done to ensure that as many people as possible can receive support, as there can be significant price differences between medicines at any given time. If the individual does not wish to accept the less expensive generic medicine, they can:

  • Receive the subsidy but pay the difference between the generic medicine and the original/brand-name medicine.
  • Have the medicine marked “R” by their doctor.
  • Provide a valid medication certificate for the original/brand-name medicine, which can be obtained through their doctor.

Five categories of medicines are excluded from this agreement:

  • A10BJ06 (semaglutide, e.g. Ozempic) – unless covered by a valid medication card.
  • ATC category N06BA (centrally acting sympathomimetic medicines).
  • ATC category G02BB01 (vaginal contraceptives).
  • ATC category G02BA03 (intrauterine contraceptive devices/IUDs).
  • ATC category G03AA (the contraceptive pill).

Óska eftir Lyfjakorti Krafts