Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Að klífa brattann – Úlfarsfell

20. febrúar 2021 @ 11:00 - 12:30

Laugardaginn 20. febrúar, ætlum við í skemmtilega göngu upp á Úlfarsfell. Fjöldi gönguleiða er upp á Úlfarsfell og er það eitt vinsælasta fjallið á höfuðborgarsvæðinu. Af toppnum er fallegt útsýni yfir Reykjavík og nágrenni. Gangan tekur um klukkustund og er fjallið 296 metra hátt. Komum saman og njótum þess að vera úti að hreyfa okkur í fallegri náttúru á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar.

Við munum hittast á bílastæðinu við Úlfarsfell við Úlfarsfellsveg og mælum við eindregið með esjubroddum því það getur verið hált á leiðinni.

Við hjá Krafti viljum að allir fari eftir fyrirmælum Almannavarna og minnum ykkur því á að virða 2 metra regluna.

Að klífa brattann er gönguhópur fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur sem Kraftskonurnar Ragnheiður Guðmundsdóttir leiðir en hún hefur notað útivist og fjallgöngur sér til endurhæfingar og sjálfseflingar í veikindum sínum.

Göngurnar henta öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér göngur og íslenska náttúru og njóta þess að vera í hópi meðal jafningja.

Kraftsfélagar, fjölskyldur þeirra, börn og vinir eru hjartanlega velkomin. Endilega meldið ykkur á Facebook viðburðinum

Hægt er að ná í Ragnheiði í síma: 663-9360

Upplýsingar

Dagsetning:
20. febrúar 2021
Tímasetning:
11:00 - 12:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/251557419704077/

Viðburðahaldari

Kraftur Stuðningsfélag
Sími
866 9600
View Viðburðahaldari Website

Staðsetning

Úlfarsfell
Bílastæðið Hafravatnsmeginn Iceland
View Staðsetning Website