Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • Þessi viðburður er liðinn.

Aðstandendakvöld Krafts

15. nóvember 2022 @ 20:00 - 21:30

Aðstandendakraftur

Þriðjudaginn 15. nóvember verður opið hús fyrir aðstandendur þar sem hægt er að fá hagnýtar upplýsingar um þann stuðning sem er í boði fyrir aðstandendur og hitta aðra sem eru í sömu sporum. Við þekkjum það sem höfum verið í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa svipaða reynslu.

Fulltrúi frá Ljósinu mun koma og vera með fræðslu um þann stuðning sem er í boði fyrir aðstandendur og síðan verður boðið upp á jafningjaspjall milli aðstandenda. Við þekkjum það sem höfum verið í þessum sporum hversu ómetanlegt það getur verið að tala við aðra sem hafa svipaða reynslu.

Áttu eða hefur þú átt ástvin sem greinst hefur með krabbamein? Ef þú ert maki, foreldri, systkini eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi. Ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma. Það eru fleiri í þínum sporum

Aðstandendakvöldið fer fram í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Ávallt heitt á könnunni og boðið er upp á léttar veitingar.

Endilega meldaðu þig á viðburðinn okkar á FB

Hlökkum til að sjá þig ❤

Umsjónarmenn hópsins eru Hrefna Björk Sigvaldadóttir félagsmaður í Krafti en hún hefur sjálf reynslu af því að vera aðstandandi og Inga Bryndís Árnadóttir starfsmaður Krafts en hún hefur reynslu af því að vera ung og greinast með æxli.

Sendu endilega fyrirspurn á kraftur@kraftur.org eða hringdu í síma 866-9600 ef þig vantar einhverjar upplýsingar en einnig er hægt er að óska eftir inngöngu í hópinn á Facebook hér.

Upplýsingar

Dagsetning:
15. nóvember 2022
Tímasetning:
20:00 - 21:30
Vefsíða:
https://www.facebook.com/events/468500391787458

Viðburðahaldari

kraftur